Grímsvatnahlaupi að ljúka – Sigketill við Grímsfjall

Kortið sýnir Grímsvötn og staðsetningu sigkatlanna SA við Grímsfjall. 22. janúar 2024.

Frá því að Grímsvatnahlaupið náði hámarki í Gígjukvísl fyrir um það bil viku hefur vatnshæð þar farið lækkandi og er nú orðin svipuð og hún var fyrir hlaup.

Hlaupórói sem mældist á jarðskjálftamæli á Grímsfjalli hefur líka lækkað og er nú kominn niður í eðlilegt horf. Frá því á mánudaginn í síðustu viku hefur 21 jarðskjálfti mælst í Grímsvötnum, þar af tveir skjálftar yfir tveimur að stærð.

Við skoðun á gervitunglamyndum frá því í gær, 21. janúar, sjást tveir sigkatlar SA af Grímsfjalli. Annar þeirra er sá sem myndaðist í hlaupinu 2021 en hinn gæti hafa myndast í nýafstöðnu hlaupi eða verið eldri ketill sem hefur virkjast aftur. Sigkatlarnir eru nærri ferðaleið austur af Grímsfjalli og æskilegt að forðast ketillinn á ferð um þær slóðir.

Hnit fyrir staðsetningu sigkatlanna eru eftirfarandi:

  • Sigketill GV-33: 64°23,611′ og -17°13,017′ (baughnit, WGS-84)
  • Nýr sigketill: 64°23,766′ og -17°12,729′ (baughnit, WGS-84)

Fluglitakóði yfir eldstöðinni hefur verið færður aftur niður á grænt. Til lengri tíma litið hefur virkni í Grímsvötnum verið þó nokkur og síðustu fimm mánuði hefur fjöldi jarðskjálfta verið yfir þeim fjölda sem telst eðlileg bakgrunnsvirkni. Ef til eldgoss kæmi í Grímsvötnum er gert ráð fyrir því að ákafrar aukningar í smáskjálftavirkni yrði vart áður en gos hæfist. Vísindamenn Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar munu áfram fylgjast mjög náið með Grímsvötnum.

Fyrri greinRobert Blakala í Selfoss
Næsta greinFærðu HSU veglega peningagjöf