Glæsileg þrettándagleði á Selfossi

Frá blysförinni í kvöld. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Selfyssingar og nærsveitungar kvöddu jólin með glæsilegri þrettándagleði í kvöld. Það viðraði vel til brennuhalds og flugeldasýningar enda var mikið fjölmenni á svæðinu.

Farin var fjölmenn blysför frá Tryggvaskála að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt var í þrettándabálkesti. Björgunarfélag Árborgar ásamt Ungmennafélagi Selfoss sáu svo um glæsilega flugeldasýningu af Fjallinu eina.

Bræðurnir þrettán úr Ingólfsfjalli voru að sjálfsögðu á svæðinu ásamt álfum og tröllum og kvöddu þeir krakkana á Selfossi áður en haldið var til fjalla.

Stúfur lék á als oddi í blysförinni og gaf sér góðan tíma til að spjalla við krakkana. sunnlenska.is/Guðmundur Karl
Fyrri greinHamar/Þór byrjar árið á sigri
Næsta greinSamþykkt að stækka íþróttahúsið við Skólamörk