Gervigrasvöllur í Hveragerði boðinn út

Afstöðumynd af væntanlegum gervigrasvelli. Núverandi vallarhús er fyrir miðri mynd og Grýluvöllur neðst til hægri.

Bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að hefja uppbyggingu á fyrsta áfanga gervigrasvallar við Hamarshöll á grundvelli tillögu Alark arkitekta. Bæjarstjóra var falið að setja af stað útboð eða verðkönnun og sjá um samningagerð.

Á fundinum var einnig lögð fram tillaga að afstöðumyndum er varðar nýja gervigrasvöllinn og rætt um næstu skref í framkvæmdinni.

Útboð vegna jarðvegsskipta verður gert síðar í þessum mánuði. Annað útboð verður um miðjan júní. Það felur í sér lagnir og annað undirlag fyrir lokaáfangann sem er sjálft gervigrasið. Síðasta útboðið í þessum fyrsta áfanga gervigrasvallarins verður í haust og er vonast til að unnt verði að hefja notkun á grasinu snemma næsta vetur.

Fyrri greinJafnt í toppslagnum
Næsta greinGul viðvörun á hvítasunnudag