
Laugardaginn 24. október, fyrsta dag vetrar, bíður fræðslusetur Landverndar að Alviðru upp á gönguferð um kjarri vaxið Öndverðarnes á bökkum Sogsins og Hvítár.
Mæting á hlaðinu að Alviðru kl. 14:00. Gangan tekur um tvær klukkustundir.
Öndverðarnesið liggur á austurbakka Sogsins og er umvafið náttúrulegum birkiskógi í liðlega 6.000 ára gömlu Grímsneshrauninu. Þar liggur gönguleið meðfram bökkum Sogsins að Hvítá. Saman mynda þessar tvær ár Ölfusá, vatnsmesta fljót landsins.
Að lokinni göngu verður boðið upp á kakó og kleinur í gamla bænum og spjallað um fugla og fjöll. Allir velkomnir.
Alviðra er friðland og fræðslumiðstöð Landverndar staðsett undir Ingólfsfjalli við vegamóta Biskupstungubrautar og Grafningsvegar, um 10 km norður af Selfossi, á móts við Þrastarlund.
