Geir hættir sem bæjarstjóri

Geir Sveinsson. Ljósmynd/Hveragerðisbær

Meirihluti bæjarstjórn Hveragerðisbæjar og Geir Sveinsson bæjarstjóri hafa komið sér saman um tillögu að starfslokasamningi Geirs. Tillagan verður lögð fyrir fund bæjarstjórnar á föstudagsmorgun.

Starfsfólk á bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar var upplýst í morgun um að tillagan verði lögð fram.

Í tilkynningu frá Jóhönnu Ýr Jóhannsdóttur, formanni bæjarráðs og Nirði Sigurðssyni, forseta bæjarstjórnar, segir að ekki verði veittar frekari upplýsingar fyrr en að bæjarstjórnarfundi loknum.

Fyrri greinHelga Fjóla og Bryndís Embla bikarmeistarar
Næsta greinBaldur gefur kost á sér