Í dag, sunnudaginn 25. október, hefst hin árlega garðfuglakönnun Fuglaverndar og stendur til 24. apríl. Garðfuglakönnun hófst árið 1994 og hefur staðið óslitið síðan.
Hér er slóð á viðburðinn á heimasíðu Fuglaverndar
Tilgangur garðfuglakönnunar er að fá upplýsingar um fuglategundir og fjölda fugla sem halda sig í görðum á Íslandi yfir vetrarmánuðina. Jafnframt er tilgangurinn að hvetja fólk til að líta á fuglalífið í sínu nánasta umhverfi. Það skiptir ekki máli þó fólk byrji aðeins seinna að telja eða hætti fyrr – aðalatriðið er að vera með. Allt fuglaáhugafólk sem hefur aðgang að garði er hvatt til að kynna sér efnið og taka þátt.
Við fyrstu sýn virðist þetta vera snúið en þegar verkið er hafið er þetta ekkert mál og það verður að vana að kasta tölu á fugla og greina tegundir. Þægilegast er að vera með fugla á fóðrum þar sem maður dvelst og telja daglega, vikulega eða eins og hverjum hentar best.
Hér eru leiðbeiningar um fóðrun fugla
Fuglavernd hvetur allt fuglaáhugafólk hvort sem það er félagar Fuglaverndar eða ekki að taka þátt í könnuninni. Því fleiri sem taka þátt þeim mun áreiðanlegri niðurstöður fást. Þetta eru sannkölluð borgaravísindi.

