Fyrsta skóflustungan að hátækni-landeldisstöð GeoSalmo

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og Hreiðar Hreiðarsson, eldisstjóri GeoSalmo, tóku fyrstu skóflustunguna og var það vel enda ráðherrarnir báðir fulltrúar úr Suðurkjördæmi. Ljósmynd/GeoSalmo

Í gær var tekin fyrsta skóflustunga að nýrri hátækni-landeldisstöð GeoSalmo sem staðsett verður vestan við Þorlákshöfn. Viðburðurinn markar tímamót í starfsemi fyrirtækisins en stefnt er að því að stöðin verði tekin í notkun 2026. Þar sem allra veðra er von á þessum árstíma var gestum boðið upp á beint streymi frá skóflustungunni sjálfri í Ráðhúsi Ölfuss.

„Við höfum unnið hörðum höndum undanfarin tvö ár að því að hanna og undirbúa stöðina og þar af leiðandi eru þetta mikill gleðidagur. Fiskeldisstöðin og tengdar byggingar sem við tókum fyrstu skóflustunguna að í dag eru meðal stærstu framkvæmda sem einkaaðili hefur ráðist í á Íslandi og ef rétt er haldið á málum getur landeldi orðið að nýrri undirstöðu-atvinnugrein hér á landi,“ segir Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri GeoSalmo.

Fullbyggð landeldisstöð GeoSalmo verður með framleiðslugetu upp á 24 þúsund tonn á ári, en með fyrsta áfanga verður framleiðslugetan um 7.500 tonn. Stefnt er að því að fyrstu afurðir komi á markað um mitt ár 2027 en fyrsta fasa fjármögnunar lauk í lok síðasta árs með þátttöku norskra, sænskra, íslenskra og hollenskra fjárfesta. Meðal þeirra fjárfesta sem komu nýir að verkefninu eru Skel fjárfestingafélag, Úthafsskip og eigendur sjávarútvegsfélagsins Eskju ásamt norsku iðnaðarsamsteypunni Endúr ASA og tengdum aðilum og svo hollenska fiskvinnslu- og dreifingarfyrirtækinu Adri & Zoon.

Ráðherrar munduðu skóflurnar
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tóku fyrstu skóflustungurnar ásamt Hreiðari Hreiðarssyni, eldisstjóra GeoSalmo. Guðrún segist fagna því að fyrirtæki eins og GeoSalmo sé reiðubúið að fjárfesta verulega til atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar í Ölfusi. „Fjárfesting sem þessi er afar mikilvæg fyrir samfélagið hér sem og nærliggjandi svæði enda mun hún efla hagkerfið og stuðla að samfélagsþróun. Þetta er ekki bara spurning um að byggja upp eitt stórt verkefni heldur að skapa varanlega blómstrandi samfélag sem kemur til með að skipta máli fyrir þjóðarbúið allt,“ segir Guðrún.

Sigurður tók undir þetta og bætti við að laxeldi verði sífellt mikilvægari þáttur í próteinframleiðslu heimsins. „Því er afar ánægjulegt að sjá kraftinn sem hefur einkennt áform fyrirtækisins í landeldi,“ segir Sigurður Ingi.

Velferð á forsendum verðmætaframleiðslu
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, segir að heimamenn hafi mjög skýra sýn á mikilvægi þess að marka Ölfusi sérstöðu í framleiðslu á umhverfisvænum matvælum. „Með nýrri landeldisstöð GeoSalmo við Þorlákshöfn eykst enn slík starfsemi. Við þekkjum vel að velferð verður ekki fengin nema á forsendum verðmætaframleiðslu. Verkefnið hefur verið lengi í mótun og ýmsir aðilar komið að borðinu með metnað til þess að byggja upp ábyrga starfsemi til frambúðar. Það er því mikið fagnaðarefni að fyrsta skóflustungan hafi verið tekin og það styttist þar af leiðandi í að starfsemin hefjist,“ segir Elliði.

Þar sem allra veðra er von á þessum árstíma var gestum boðið upp á beint streymi frá skóflustungunni sjálfri í Ráðhúsi Ölfuss. Ljósmynd/Geo Salmo
Elliði Vignisson bæjarstjóri, Jens Þórðarson framkvæmdastjóri GeoSalmo og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra. Ljósmynd/GeoSalmo
Fyrirhuguð landeldisstöð GeoSalmo í Ölfusi. Mynd/GeoSalmo
Fyrri greinGul viðvörun á föstudagskvöld
Næsta greinSamkaup, Heimkaup og Orkan ræða sameiningu