Meirihluti fjárlaganefndar og umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis fundar í dag með fulltrúum ráðuneyta innviða og fjármála, þar sem fara á yfir stöðu mála varðandi nýja brú yfir Ölfusá. Boðað var til fundarins í gær.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Njáll Trausti Friðbertsson formaður fjárlaganefndar segir í samtali við Morgunblaðið að til standi að kynna stöðu Ölfusárbrúarverkefnisins, hvort annað sé þar til umræðu viti hann ekki.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti í sl. viku ósk um minnisblað frá innviðaráðuneytinu um stöðu framkvæmdarinnar. Einnig er beðið um uppfærða tímalínu, áfallinn kostnað, uppfærða kostnaðaráætlun og áætlaðan fjármagnskostnað, en síðast þegar til áætlunarinnar spurðist fyrir ári stóð hún í 15,3 milljörðum.
Þá óskar nefndin eftir upplýsingum um hvort ástæða sé til að endurskoða hönnunarþátt verkefnisins m.t.t. þess að hagkvæmni þess væri sem best tryggð. Loks vill nefndin fá upplýsingar um hvernig fjármögnun verkefnisins, sem gjaldtaka á að standa undir, falli að lögum um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir og næstu skref.