Foreldrafélagið gaf Vallaskóla grill

Ljósmynd/Aðsend

Foreldrafélag Vallaskóla á Selfossi færði skólanum tvö glæsileg gasgrill á dögunum. Grillin komu í góðar þarfir á vorhátíðardegi skólans sem haldin var í dag en þar grilluðu starfsmenn skólans pylsur ofan í nemendur og starfsfólk.

Á myndinni má sjá Pál Sveinsson, skólastjóra Vallaskóla, ásamt Maríu Ágústsdóttir, kennara og gjaldkera foreldrafélagins, spreyta sig á grillmennskunni ásamt Ósk Sveinsdóttur, stuðningsfulltrúa.

Starfsfólk og nemendur Vallaskóla færa foreldrafélaginu miklar og góðar þakkir fyrir höfðinglega gjöf sem sannarlega kemur að góðum notum.

Fyrri greinHlaupahátíð í Hveragerði um helgina
Næsta greinMörkin láta á sér standa