„Fór betur en á horfðist“

Slökkviliðsmenn á vettvangi á Efstalandi í gærkvöldi. Ljósmynd/Brunavarnir Árnessýslu

Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu var kallað að veitingasal við Efstaland í Ölfusi í gærkvöldi eftir að eldur kom upp á staðnum.

Neyðarlínan fékk boð um eldinn klukkan 22:52 og var fyrsti bíll frá slökkviliðinu mjög fljótur á vettvang.

„Það kviknaði í undir klæðningu á útvegg en varðstjórinn okkar var staddur mjög nálægt og þegar hann kom á staðinn voru húsráðendur búnir að tæma úr nokkrum slökkvitækjum og slá á eldinn,“ sagði Lárus Kristinn Guðmundsson, varaslökkviliðsstjóri, í samtali við sunnlenska.is.

„Þetta er mjög stórt hús, þannig að þarna fór betur en á horfðist,“ bætti Lárus við en slökkviliðsmenn frá Hveragerði og Selfossi mættu á staðinn og reykræstu húsið.

Ljósmynd/Brunavarnir Árnessýslu
Fyrri greinEiríkur Örn hagar sér eins og sveitaballapoppari
Næsta greinHamar tapaði nýliðaslagnum