Fjölmenni í kaffispjalli á Níunni

Hamingja og velferð í dagsins önn. Ljósmynd/Ölfus

Það var mikil ánægja með fræðsluerindi Ólínu Þorleifsdóttur, skólastjóra og nema í jákvæðri sálfræði, á Níunni í Þorlákshöfn í gær. Erindið bar yfirskriftina Hamingja og velferð í dagsins önn og er fyrsta erindi ársins í samvinnu fjölskyldu og fræðslusviðs og félags eldri borgara.

Í erindinu fjallaði Ólína um fræðigreinina jákvæða sálfræði. Þá greindi hún frá kenningum um hamingju og rannsóknum á því hvernig við getum haft áhrif á hamingju okkar með hugarfari.

Auk þess var fjallað um ýmsar leiðir sem sýnt hefur verið fram á að stuðla að hamingju eins og t.d. núvitund, jákvætt sjálfstal, þakklæti og styrkleika. Einnig mikilvægi þess að sjá alla litlu góðu hlutina sem eiga sér stað í lífi okkar á hverjum degi.

Það er mikilvægt að við minnum okkur á að ný tækifæri fást ekki aðeins í upphafi nýs árs heldur blasa þau við okkur á hverjum morgni þegar við vöknum.

Fyrri greinDagdvöl aldraðra lokað í fjórar vikur í sumar
Næsta greinLeikjum Selfoss og Hrunamanna frestað