Fjölbýlishúsin við Tryggvagötu Svansvottuð

Guðjón Þórisson, Gylfi Gíslason, Bergþóra Kvaran og Sigrún Melax við afhendingu Svansvottunarinnar. Ljósmynd/Aðsend

Síðastliðinn föstudag kom Bergþóra Kvaran frá Svaninum færandi hendi og afhenti JÁVERK staðfestingu á Svansvottun fyrir fjölbýlishúsin við Tryggvagötu 10-12 á Selfossi.

Guðjón Þórisson, verkefnastjóri auk Gylfa Gíslasonar, framkvæmdastjóra og Sigrúnar Melax, gæða-, öryggis-, og umhverisstjóra JÁVERK veittu vottuninni viðtöku.

Svansvottun felur í sér strangar kröfur um gæði, umhverfismál og innivist. Á byggingartíma eru framkvæmdar meðal annars rakamælingar og loftþéttleikaprófanir, auk þess sem öll byggingarefni þurfa að uppfylla kröfur Svansins um heilnæmi og umhverfisáhrif.

„Við hönnun og uppbyggingu íbúðanna á Tryggvagötu var sérstök áhersla lögð á góða innivist, hljóð- og ljósvist, loftræsingu, orkunýtingu og endingargóð efni. Notkun steypu með lægra kolefnisspori gerði okkur jafnframt kleift að draga úr kolefnislosun vegna steypunnar um ríflega 30%,“ segir Guðjón Þórisson í samtali við sunnlenska.is.

Sigrún Melax, gæða-, öryggis-, og umhverfisstjóri og Guðjón Þórisson, verkefnastjóri hjá JÁVERK. Ljósmynd/Aðsend

„Við erum afar stolt af þessu verkefni. Auk vandaðra íbúða hefur verið skapað fjölskylduvænt umhverfi þar sem grunnskóli, sundlaug, líkamsrækt, fjölbreytt þjónusta og nýji miðbær Selfoss er allt í göngufæri. Þarna er stæði í bílakjallara fyrir allar íbúðir, rúmgóðar geymslur og lyfta beint úr kjallara upp á allar hæðir.“

Þess má geta að fjölbýlishúsin við Tryggvagötu hlutu viðurkenningu sem fallegasta fjölbýlið í Árborg í sumar. Þar kom fram í umsögn dómnefndar að allur frágangur við húsin sé til mikils sóma og lóðin skemmtileg og vel hirt svo eftir er tekið.

Fyrri greinKallað eftir hugmyndum að rannsóknarverkefnum