Fjóla tekur við af Elliða í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga

Fjóla Kristinsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Vegna anna sem sveitarstjóri í ört vaxandi sveitarfélagi hefur Elliði Vignisson sagt sig úr stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga. Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri í Árborg, er varamaður Elliða og tekur sæti hans sem aðalmaður fram að næsta fundi hluthafa Lánasjóðsins.

Í tilkynningu til stjórnar lánasjóðsins segir Elliði að Ölfus sé á ákveðnum tímamótum þar sem íbúum fjölgi hratt og atvinnulífið sé í veldisvexti.

„Verið er að ráðast í miklar framkvæmdir til að styðja þennan vöxt auk þess sem öll þjónusta er í uppbyggingu. Þá hefur sveitarfélagið stigið fast fram í orkumálum og m.a. stofnað Orkufélagið Títan og þar gegni ég stöðu framkvæmdastjóra. Enn eru þá ótalin verkefni sem tengjast hafnarframkvæmdum, vindorkuverkefnum, stofnun grænna iðngarða og margt annað sem breytt hefur forsendum fyrir öðrum störfum mínum. Mat mitt er að athygli mín þurfi að vera óskipt á hagsmunum sveitarfélagsins,“ segir Elliði.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi.
Fyrri greinGlæsilegt jólahús á Hvolsvelli
Næsta greinHrædd um að mamma pósti ljótri mynd af mér á Facebook