Fjárhús í Mýrdalnum alelda á skömmum tíma

sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um eldsvoða á sveitabæ í Mýrdalshreppi laust fyrir klukkan 21:00 í gærkvöldi. Fyrsta tilkynning hljóðaði uppá að eldur væri í íbúðarhúsi en hann reyndist svo vera í útihúsum sem standa nálægt íbúðarhúsinu.

Allt tiltækt lið slökkviliðs og sjúkraflutninga í Vík ásamt slökkviliðinu á Hvolsvelli og Hellu voru send á staðinn. Er lögregla kom á vettvang voru vegfarendur sem leið höfðu átt framhjá bænum og nágrannar, sem höfðu orðið eldsins varir, komnir íbúunum til aðstoðar en útihúsin urðu alelda á skömmum tíma. Nú stendur sauðburður sem hæst og voru kindur komnar að burði hýstar í húsunum.

Íbúar, með aðstoð vegfarenda, náðu að bjarga flestum kindunum úr húsunum en að minnsta kosti þrjár kindur og fjögur nýfædd lömb drápust. Slökkvistarf gekk vel og tók um 90 mínútur en það gekk fyrst út á að verja íbúðarhúsið. Slökkvilið þurfti meðal annars að sækja vatn á tankbíla töluvert frá bænum.

Lögregla vill þakka viðbragðsaðilum fyrir snögg viðbrögð og sérstaklega þeim vegfarendum sem komu fyrstir að og aðstoðuðu við björgun sauðfjárins.

Slökkvilið Víkur hafði vakt við útihúsin fram á nótt í öryggisskyni. Þá eru eldsupptök ókunn en rannsókn stendur yfir.

Fyrri greinLítill munur á lægstu tilboðum
Næsta greinStefnt á umhverfisvænan bílaflota