Fimmvörðuháls er mögnuð kennslustofa

Hópurinn á toppi gígsins Magna, sem dregur nafn sitt af syni Þórs þrumuguðs sem hann eignaðist með jötunmeynni Járnsöxu. Ljósmynd/FSu

Þriðjudaginn 5. september síðastliðinn gengu 24 nemendur og þrír kennarar úr Fjölbrautaskóla Suðurlands yfir Fimmvörðuháls en gangan er verkefni í jöklafjallgönguáfanga á hverri önn.

Lagt var af stað frá Skógum, gengið meðfram Skógá og öllum þeim fjölmörgu fossum sem leynast í ánni. Frá brúnni yfir Skógá var komið í Baldvinsskála, þaðan farið milli jökla yfir hinn eiginlega Fimmvörðuháls sem er í rúmlega 1.000 metra hæð. Á þessum kafla sést vel hve jöklarnir hafa hopað og þar sem áður voru snjófannir eru nú komnir djúpir dalir og íshröngl.

Áfram var haldið upp á gíginn Magna sem einnig er í rúmlega 1.000m hæð og þaðan fékkst góð sýn yfir hraunbreiðuna og fjöllin í kring. Frá Magna lá leiðin í Bása, niður Bröttufönn, Heljarkamb, Morinsheiði, Kattahryggi og skógivaxna stíga. Það er skemmst frá því að segja að ferðin gekk eins og í sögu, veðrið lék við hópinn allan tímann, þrátt fyrir að veðurspáin hefði ekki verið spennandi dagana áður.

Hópurinn var einstaklega samstilltur og jákvæður sem breyttist ekkert þó svo að þau væru orðin ansi lúin þegar komið var niður í Bása, enda búin að ganga 25 km. Í Básum kom einn göngufélaginn á óvart og bauð upp á pylsuveislu, áður en haldið var heim.

Í frétt frá skólanum segir að þessi ganga hafi heppnast einstaklega vel í góðum hópi nemenda og kennara.

„Að ganga yfir Fimmvörðuháls er mögnuð kennslustofa þar sem mjög fjölbreytt nám fer fram. Þar er náttúran skoðuð og krufin, hvernig skal bera sig að á fjöllum, reynt er á líkamlegt og andlegt þol og svo eflum við okkur saman í hóp. Sá lærdómur sem kannski er þó þýðingarmestur í svona kennslustofu er lærdómurinn um sjálfan sig og að leysa úr aðstæðum sem oft geta verið erfiðar og krefjandi,“ segir í frétt skólans.

Fyrri greinAlexander Adam valinn í landsliðið
Næsta greinVæri til í að vera Jesú Kristur