Féll útbyrðis þegar kviknaði í léttabát Herjólfs

Frá útkallinu í kvöld. Ljósmynd/Landsbjörg

Einn maður úr þriggja manna áhöfn léttabáts Herjólfs féll útbyrðis þegar eldur varð laus í vélarrúmi bátsins í kvöld. Herjólfur var þá á leið úr Landeyjahöfn til Vestmannaeyja og var ferðin notuð til að æfa notkun léttabátsins.

Björgunarskipið Þór í Vestmannaeyjum var kallað út á hæsta forgangi og hélt úr höfn í Eyjum klukkan 18:35. Þegar Þór kom á staðinn, nokkrum mínútum síðar, höfðu þeir tveir sem voru um borð í léttabátnum, náð félaga sínum sem féll útbyrðis aftur um borð og áhöfninni hafði tekist að slökkva eldinn með slökkvikerfi í vélarrúmi hans. Engin hætta var lengur á ferðum.

Áhöfn léttabátsins var tekin um borð í Bs Þór og áhöfn Þórs kom toglínu í léttabátinn. Þór hélt svo með léttabátinn í togi til hafnar í Vestmannaeyjum.

Þeir þrír sem voru um borð í léttabátnum voru fluttir með sjúkrabíl til skoðunar á sjúkrahúsi Vestmannaeyja, að eigin ósk.

Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að gott veður og sjólag hafi verið á staðnum og gengu aðgerðir vel. Þór var lagstur að bryggju og verkefni lokið um 45 mínútum eftir að lagt var úr höfn.

Fyrri greinFjórar hraðhleðslustöðvar settar upp á Flúðum
Næsta greinHamarsmenn fallnir – Öruggt hjá Þór