Hvergerðingurinn og frumkvöðullinn Steinar Gunnbjörnsson setti nýlega á markað tæknilausnina Stimpil sem gerir fyrirtækjum kleift að færa hefðbundin stimpilkort úr pappírsformi yfir í síma viðskiptavina.
„Hugmyndin kom upp í hugarflugi hjá mér, ég hef reynt margt áður en þegar ég fór svo að ræða við eigendur fyrirtækja reiknaði eigandi ísbúðar í Reykjavík út að hann eyðir um 130 þúsund krónum á ári í prentun stimpilkorta, án þess að vita hverjir koma aftur og hverjir hætta að koma. Þannig þessi hugmynd kom í raun frá hugarflugi og því að hugsa í lausnum,“ segir Steinar í samtali við sunnlenska.is.
„Fyrsta útgáfan var komin í loftið á nokkrum dögum. Ég nota gervigreind til að skrifa kóðann en sé sjálfur um hugmyndina, hönnunina, söluna og samskipti við viðskiptavini.“
Einfalt í notkun
Vert er að taka fram að Stimpill er ekki app sem þarf að sækja heldur tæknilausn sem fyrirtækin setja upp. Fyrirtækin setja upp sitt eigið stimpilkort á vef Stimpils (aithjonusta.is), viðskiptavinurinn skannar QR-kóða og kortið fer í Apple Wallet eða Google Wallet í símanum.
„Starfsfólk stimplar með því að skanna kortið og eigandinn sér þá hverjir koma aftur. Viðskiptavinur sem hefur ekki komið í 30 daga fær sjálfkrafa skilaboð á lásskjáinn.“
„Ég hef haft samband við yfir 300 fyrirtæk um allt landi á síðustu vikum og fundið fyrir miklum áhuga. Í næstu viku á ég nokkra fundi með fyrirtækjum og stofnunum, þar á meðal sveitarfélagi á Suðurlandi. Ég er að skoða að tengja Stimpil við kassakerfi og sjálfvirk tæki eins og er, svo stimplun gerist sjálfkrafa,“ segir Steinar ennfremur.

