Emil&Lína og Sjóðurinn góði safna jólagjöfum

Jóna Alla Axelsdóttir. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen

Barnavöruverslunin Emil&Lína stendur fyrir jólagjafasöfnun á Selfossi þessa aðventuna, í samstarfi við Sjóðinn Góða og hefst söfnunin formlega þann 3. nóvember næstkomandi.

Markmiðið er að safna 150 gjöfum fyrir börn og fullorðna á Selfossi og nágrenni sem annars fengju lítið og Sjóðurinn góði mun sjá um að úthluta gjöfunum á rétta staði fyrir jól.

Í verslun Emil&Lína við Larsenstræti 2 verður fallegt jólatré til að setja pakkana undir og þar verður einnig boðið upp á innpökkun á staðnum. Söfnunin stendur yfir til þann 15. desember.

Sjóðurinn góði hefur verið starfræktur síðan árið 2008 og er samstarfsverkefni ýmissa kvenfélaga, Lionsklúbba, kirkjusókna í Árnessýslu, Félagsþjónustunnar í Árborg, Hveragerði, Ölfusi og uppsveitum Árnessýslu og deilda Rauða krossins í Árnessýslu. Hlutverk Sjóðsins góða er að styrkja einstaklinga og fjölskyldur sem standa höllum fæti og eiga ekki fyrir nauðþurftum fyrir jólin og einnig á vormánuðum fyrir fermingar.

Emil&Lína opnaði á Selfossi vorið 2025 og rekur nú fimm fallegar verslanir um allt land með barnavörumerkin Mayoral, Born in Iceland og iCandy. Verslunin hefur vakið athygli bæjarbúa á Selfossi en þar hafa reglulega verið skemmtilegar uppákomur og viðburðir, handverksmarkaðir, foreldramorgnar, prjónamorgnar og fleira og nú vill starfsfólk Emil&Lína nýta aðstöðu sína til góðs og hvetja íbúa í Árborg til að láta gott af sér leiða.

„Saman getum við glatt ótrúlega marga um jólin og séð til þess að ekki vanti pakka undir tréð á neinu heimili. Við kunnum að meta alla þá hjálp sem við fáum til að hjálpa þeim sem á þurfa að halda, segir Jóna Alla Axelsdóttir, aðstoðarverslunarstjóri Emil&Lína.

Fyrri greinPálsson fasteignasala eflir þjónustu sína á Suðurlandi