Eldur kviknaði í steikingarbúnaði

Slökkvistarf í gangi við Eyraveginn í morgun. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Eldur kom upp á veitingastaðnum Krisp við Eyraveg á Selfossi á tólfta tímanum í morgun. Að sögn Lárusar Kristins Guðmundssonar, varaslökkviliðsstjóra, kom eldurinn upp í eldhúsinu og fór upp í reykháf.

„Við erum að vinna að því núna að rífa frá háfnum og slökkvistarfinu er að ljúka. Það gerist eitthvað þarna í kringum steikingarbúnaðinn í eldhúsinu og það kviknar í háfnum en eldurinn var bara bundinn við eldhúsið og háfinn,“ sagði Lárus í samtali við sunnlenska.is en slökkviliðsmenn voru fljótir á vettvang, ásamt sjúkraflutningum og lögreglu.

Starfsfólk veitingastaðarins slapp út ómeitt og engum varð meint af reyknum eftir því sem Lárus best vissi.

Slökkviliðsmenn þurftu að rjúfa gat á reykháfinn og dæla vatni þar niður. sunnlenska.is/Guðmundur Karl
Fyrri greinAuknar tekjur og valfrelsi í Árborg
Næsta greinEiríkur Örn hagar sér eins og sveitaballapoppari