Eldur kviknaði í timburklæðningu

Litlu munaði að illa færi í Grímsnesinu síðdegis í gær þegar að eldur kviknaði í timburklæðningu á einbýlishúsi. Nágranni varð var við eldinn og slökkti hann með slökkvitæki meðan eldurinn var enn á upphafsstigi.

Þetta atvikaðist þannig að blómapottur sem stóð upp við vegg utanhúss hafði verið notaður sem öskubakki. Ekki hafði drepist fyllilega í síðust sígarettu sem þar var sett og voru veðurfarsaðstæður þannig að í blómapottinum magnaðist upp eldur sem læsti sig í klæðningu hússins.

Talsvert lið frá Brunavörnum Árnessýslu var kallað út en slökkvibílar og slökkviliðsmenn liðsins voru hinsvegar afturkallaðir þegar ljóst var að búið væri að slökkva.

Engu að síður fór starfsmaður slökkviliðsins á staðinn með hitamyndavél og gekk úr skugga um að ekki leyndist glóð undir veggjaklæðningunni.

Fyrri greinHljómeyki og Elfa Rún í Skálholti
Næsta greinFyrsta skóflustungan að nýju verknámshúsi