„Ekki verið að skerða heilbrigðisþjónustuna í Uppsveitum“

Laugarás. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Í pistli á heimasíðu og Facebooksíðu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri, að ekki sé verið að skerða heilbrigðisþjónustuna í Uppsveitum Suðurlands. Pistilinn ritar hún í ljósi umræðunnar undanfarna daga varðandi læknamönnun á heilsugæslu HSU í Laugarási.

„Heilbrigðisþjónusta er í stöðugri endurskoðun og mikilvægt er að horfa til framtíðar og leggja mat á hvernig best er að þróa og bæta starfsemi heilsugæslu á hverjum stað fyrir sig. Í heilsugæslustöð HSU í Uppsveitum Suðurlands sem í dag er staðsett í Laugarási er verið að endurskoða starfsemi stöðvarinnar með það fyrir augum að bæta heilbrigðisþjónustu á svæðinu með aukinni dagþjónustu,“ segir Díana.

„Í þeirri skipulagsbreytingu er m.a. unnið að því að fjölga læknatímum og bæta við samdægurstímum fyrir skjólstæðinga sem þurfa á slíku að halda. Markmiðið með þessum breytingum er að heilbrigðisþjónustan fái tækifæri til að eflast og dafna í vaxandi samfélagi sem Uppsveitirnar svo sannarlega eru. Bráðaviðbragði er sinnt af sjúkraflutningum HSU allan sólarhringinn og læknir er á bakvakt á svæðinu fyrir alvarleg bráðatilfelli utan dagvinnutíma,“ segir Díana ennfremur.

Fyrri greinRut og vinir hennar á síðustu Gleðistund sumarsins
Næsta grein89% foreldra fylgjandi símalausum skóla