Eina fullkomnasta verksmiðja Evrópu reist í Þorlákshöfn

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, og Karl Wernerson, stofnandi Kamba, handssala byggingarstaðinn og fyrirhugað útlit verskmiðjunnar.

Kambar hyggjast reisa glugga- og hurðaverksmiðju í útjaðri Þorlákshafnar og segir Elliði Vignisson bæjarstjóri að húsið verða eitt af kennileitum bæjarins, því um stærsta hús Þorlákshafnar verður að ræða.

Kambar urðu til í byrjun árs 2022 þegar Samverk glerverksmiðja, Trésmiðjan Börkur, Gluggasmiðjan Selfossi og Sveinatunga sameinuðust í eitt fyrirtæki. Þar með voru nokkur rótgróin íslensk framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaðinum komin saman í einn rekstur.

Staðsetning verksmiðjunnar í Þorlákshöfn var sérstaklega valin til að kolefnissporið yrði sem minnst. Stutt er í vöruflutningahöfn fyrir aðföng verksmiðjunnar og viðurinn sem er notaður er sérvalinn úr nytjaskógum í Skandinavíu þar sem bæði fást gæði og lægst kolefsnisspor við ræktun, vinnslu og flutning. Mikil sjálfvirkni verður í verksmiðjunni þar sem gluggarnir verða afhentir fullbúnir og glerjaðir fyrir byggingariðnaðinn.

„Við sáum þarna mikið tækifæri til hagræðingar og lækkun á kolefnisspori í byggingariðnaðinum með því að sameina öll þessi fyrirtæki. Með því að sameina alla okkar framleiðslu í glugga- og hurðasmíði á einum stað, með einni fullkomnustu verksmiðju í Evrópu, þá náum við bæði þeim árangri að lækka kolefnissporið verulega fyrir byggingariðnaðinn og að vera með íslenska framleiðslu á algjörlega samkeppnishæfu verði gagnvart innfluttri vöru,“ segir Karl Wernersson, stofnandi Kamba.

Elliði bæjarstjóri segir Þorlákshöfn vaxa hratt á forsendum vaxandi atvinnulífs. „Við erum mjög stolt af því að Kambar skyldu hafa valið Þorlákshöfn sem staðsetningu fyrir verksmiðju sína. Ekki eingöngu er þetta öflugur atvinnurekandi með löngu viðurkennda vöru og þjónustu heldur verður húsnæðið hennar eitt af kennileitum bæjarins því um stærsta hús Þorlákshafnar verður að ræða,“ segir Elliði.

Fyrirhuguð húsbygging Kamba í Þorlákshöfn.
Fyrri greinÞorsteinn Aron snýr aftur
Næsta greinHagnaður hjá Ölfusi og skuldaviðmið lækkar