Efla löggæslu milli Hafnar og Djúpavogs

Frá undirritun samstarfssamnings (F.v.) Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, Margrét María Sigurðardóttir, lögreglustjóri á Austurlandi, Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á Suðurlandi og Oddur Árnason yfirlögregluþjónn á Suðurlandi. Ljósmynd/Lögreglan

Samstarfssamningur milli lögreglunnar á Austurlandi og lögreglunnar á Suðurlandi var undirritaður í síðustu viku í stjórnsýsluhúsinu Geysi á Djúpavogi.

Markmiðið með samningnum er að styrkja og efla löggæslu á Suður- og Austurlandi og þá sérstaklega á svæðinu frá Höfn í Hornafirði að Djúpavogi. Þannig munu lögreglumenn á Höfn og Djúpavogi leitast sérstaklega við að auka samvinnu í umferðarmálum með það að markmiði að koma í veg fyrir umferðaróhöpp og slys.

Stefnt er að auknu samstarfi meðal annars um umferðarlöggæslu, leit og björgun og rannsóknir og þjálfunarmál með það að markmiði að tryggja öryggi íbúa og annarra sem búa, dvelja eða fara þar um.

Fyrri greinOpnað fyrir skráningu á Unglingalandsmótið
Næsta greinSigurmark í uppbótartíma