D-listinn í Rangárþingi eystra samþykktur

Frambjóðendur D-listans í Rangárþingi eystra. Ljósmynd/Aðsend

Listi Sjálfstæðismanna og annarra lýðræðissinna í Rangárþingi eystra var samþykktur á félagsfundi Sjálfstæðisfélagsins Kára í síðustu viku.

Anton Kári Halldórsson, oddviti Rangárþings eystra, leiðir listann en hann varð efstur í skoðanakönnun D-listans, sem fram fór í marsmánuði, og raunar sá eini sem sóttist eftir 1. sætinu. Sex efstu sætin á listanum eru samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunarinnar.

„Listinn er skipaður breiðum hópi fólks með fjölbreyttan bakgrunn. Rangárþing eystra er stútfullt af tækifærum, sem við viljum greina og láta verða að veruleika. Sveitarfélagið þarf að veita íbúunum bestu mögulegu þjónustu og vera í stakk búið til að takast á við framtíðina. Við á lista Sjálfstæðismanna og annarra lýðræðissinna hlökkum til að hefjast handa við öll þau málefni sem brenna á samfélagi okkar og vinna með íbúum Rangárþings eystra við að gera gott sveitarfélag enn betra,“ segir í tilkynningu frá framboðinu.

Listinn er þannig skipaður:
1. Anton Kári Halldórsson, oddviti R.e. og deildarstjóri skipulagsdeildar Árborgar
2. Árný Hrund Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri
3. Sigríður Karólína Viðarsdóttir, viðskiptafræðingur
4. Elvar Eyvindsson, bóndi og viðskiptafræðingur
5. Sandra Sif Úlfarsdóttir, einkaþjálfari og kennaranemi
6. Ágúst Leó Sigurðsson, sjúkraflutningamaður
7. Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, stjórnmálafræðingur og lögreglumaður
8. Guðni Steinarr Guðjónsson, starfsmaður á Kirkjuhvol
9. Baldur Ólafsson, skólabílstjóri
10. Angelia Fjóla Vilhjálmsdóttir, hótelstjóri og kennari
11. Ólafur Þórisson, bóndi og tamningamaður
12. Kristín Jóhannsdóttir, líffræðingur og bóndi
13. Elín Fríða Sigurðardóttir, fjármála-og sviðsstjóri hjá Landgræðslunni
14. Guðmundur Jón Viðarsson, bóndi

Fyrri greinRangæingar sterkari á svellinu
Næsta greinNý stjórn Votlendissjóðs