Búið að opna yfir Eldvatn – gamall varnargarður brast

Búið er að opna fyrir umferð aftur um brúna við Eldvatn. Varnargarður til móts við Múla brast fyrr í dag og því hefur rennsli í Eldvatni minnkað til muna og álagið á brúna er því minna.

Hluti árinnar rennur nú í gömlum farvegi og safnast saman við þjóðveginn. Starfsmenn frá Vegagerðinni í Vík eru að moka frá veginum og freista þess nú að stýra ánni þannig að minni líkur séu á því að það nái yfir Þjóðveg 1.

Í fréttum RÚV kom fram að um 30-40 sentimetra vantar upp á að flóðið komist upp á þjóðveginn sjálfan og fari svo verður veginum lokað og umferð beint um Meðalland.

Fyrri greinWorld Class opnar á Selfossi 2. janúar
Næsta greinFjölbreyttara námsefni fyrir nemendur