Bryggjusöngur á Stokkseyri

Múgur og margmenni var á Stokkseyrarbryggju í kvöld á fjölskylduskemmtun Bryggjuhátíðarinnar.

Skemmtunin er hápunktur Bryggjuhátíðarinnar en þar var m.a. bryggjusöngur með Árna Johnsen við varðeld í fjörunni. Á eftir er svo bændaball á bryggjunni með hljómsveitinni Granít frá Vík í Mýrdal.

Á morgun, laugardag, verður markaðsdagur í Lista- og menningarverstöðinni, sandkastalakeppni við Stokkseyrarbryggju og hverfakeppni í knattspyrnu svo fátt eitt sé nefnt.

Hátíðinni lýkur á sunnudag.

Fyrri greinMilan með fjögur í stórsigri Ægis
Næsta greinHerjólfur mátar Landeyjahöfn