Brúargólfið dregið yfir á næstu dögum

Til að styðja við brúargólfið á meðan það er dregið yfir ána hefur verið komið fyrir stóru bráðabirgðamastri ofan á því. LJósmynd/Vegagerðin

Undirbúningur fyrir einn stærsta áfanga við byggingu nýrrar Ölfusárbrúar stendur nú yfir. Á næstu dögum verður 330 metra langt og um 2.000 tonna þungt brúargólf dregið frá austurbakka Ölfusár yfir á vestari bakkann. Verkið er vandasamt og gert er ráð fyrir að það taki um tíu daga.

Undanfarið hefur verið unnið að því að ljúka samsetningu stálgrindar brúarinnar og undirbúa flutning hennar yfir ána. Búið er að koma fyrir lögnum í brúargólfinu, meðal annars fyrir heitt og kalt vatn, háspennu og fjarskipti.

Færist áfram í litlum skrefum
Við færsluna verða notaðir öflugir vökvadrifnir tjakkar sem draga brúargólfið áfram eftir sérstökum dráttarlegum. Brúargólfið hvílir á púðum sem renna eftir sléttum stálplötum og koma í veg fyrir skemmdir á yfirborði stálbitanna.

Tjakkarnir draga brúargólfið áfram um hálfan metra í einu og er áætlað að hægt verði að færa það um tíu metra á klukkustund við bestu aðstæður. Gert er ráð fyrir að færslan taki átta til tólf daga, gangi allt samkvæmt áætlun.

Í myndbandinu hér fyrir neðan er farið yfir undirbúning framkvæmdarinnar og útskýrt hvernig staðið verður að því að draga þetta 2.000 tonna mannvirki yfir Ölfusá.

Fyrri greinLeikfélag Selfoss frumsýnir Grandaveg 7