Bónus vanilludropar innkallaðir

Með hliðsjón af velferð neytenda hafa Aðföng, að höfðu samráði við Bónus og H-Berg ehf, ákveðið að taka úr sölu og innkalla Bónus vanilludropa.

Innköllunin varðar allar best fyrir dagsetningar og er tilkomin vegna óstaðfests gæðaflokks hráefnis í vörunni. Varan hefur verið tekin úr sölu í verslunum.

Viðskiptavinum Bónus sem keypt hafa vöruna er ráðið frá því að nota hana og er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.

Aðföng biður viðskiptavini Bónus sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa innilegrar afsökunar.

Fyrri greinÍslenskir prjónarar taka fundina og bjóða í frí á Suðurlandi