Bergþóra ráðin djákni við Skálholtsprestakall

Bergþóra ásamt eiginmanni sínum, Jóni Bjarnasyni kantor í Skálholtsdómkirkju. Ljósmynd/Kirkjan

Bergþóra Ragnarsdóttir var ein af þeim fjórum sem vígðust í Skálholtsdómkirkju á annan í hvítasunnu. Hún var vígð djákni til þjónustu við Skálholtsprestakall.

Bergþóra er fædd þann 11. febrúar árið 1979 á Höfn í Hornafirði og er að eigin sögn Austur Skaftfellingur í húð og hár. Foreldrar hennar eru Ragnar Jónsson bóndi og hefur hann búið alla tíð í Akurnesi í Nesjasveit og Ingunn Jónsdóttir húsmóðir, sem er fædd á Hnappavöllum í Öræfasveit. Bergþóra er gift Jóni Bjarnasyni organista í Skálholti og eiga þau eina dóttur.

Bergþóra hefur verið í kirkjustarfi frá unga aldri. „Fyrst var það sunnudagaskóli og svo byrjaði ég 12 ára gömul að syngja í kirkjukór Bjarnaneskirkju með mömmu og einni systra minna. Ég söng í kirkjukór þar til ég flutti til Reykjavíkur,“ segir Bergþóra í spjalli á vef Kirkjunnar.

Hún hóf nám í guðfræðideild Háskóla Íslands 11. september árið 2001 og vann með náminu ásamt Jóni eiginmanni sínum í sunnudagaskólanum í Breiðholtskirkju. Hún starfaði einnig eitt sumar sem kirkjuvörður á Hólum í Hjaltadal og um tíma sem kirkjuvörður í Seljakirkju í Reykjavík. Bergþóra vann, ásamt fleirum, að uppsetningu gestastofu í Skálholti sumarið 2010.

Bergþóra útskrifaðist með B.A. próf í guðfræði í október árið 2005 og lauk svo djáknanáminu árið 2015. Hún hefur séð um barnastarf í Skálholtsprestakalli síðan haustið 2014.

Fyrri greinFimm milljónir króna til verkefna á Suðurlandi
Næsta greinGunnar Nelson heimsótti Berserki BJJ