Banaslys í Öræfum

Karlmaður á fimmtugsaldri lést þegar hann missti stjórn á bifhjóli sínu á Þjóðvegi 1 skammt vestan Stigár í Öræfum í gær.

Tildrög slyssins eru til rannsóknar en maðurinn virðist hafa fallið og runnið eftir götunni í veg fyrir bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Endurlífgunartilraunir á vettvangi báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn þar.

Slysið var tilkynnt til Neyðarlínunnar kl. 13:36 í gær. Stigá er skammt austan við Hnappavelli, miðja vegu milli Kirkjubæjarklausturs og Hornafjarðar. Tæknideild lögreglu höfuðborgarsvæðisins kom á vettvang ásamt fulltrúa Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Vinnu á vettvangi lauk um kl. 19:00.

Fyrri grein„Sama hvernig maður nær að vinna“
Næsta grein„Við vorum sjálfum okkur verstar“