Aukin rafleiðni í Jökulsá á Sólheimasandi

Brúarsmiðir við Jökulsá á Sólheimasandi. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen

Undanfarna daga hefur rafleiðni aukist í Jökulsá á Sólheimasandi og mælist óvenju há miðað við árstíma. Mikið vatn er í ánni og borist hafa nokkrar tilkynningar um brennisteinslykt á svæðinu.

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að undanfarna daga hafi nokkrir smáskjálftar mælst í Mýrdalsjökli innan vatnasviðs Sólheimajökuls. Þetta sé til merkis um að jarðhitavatn sé að leka undan jöklinum en engar vísbendingar eru um frekari vatnavexti.

Ferðafólki og ferðaþjónustuaðilum á svæðinu er þó ráðlagt að vera á varðbergi.

Fyrri greinJastrzembski leystur undan samningi
Næsta greinJöfnunarmark í uppbótartíma á Stokkseyri