Ásta Tryggvadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands og tók hún til starfa þann 1. nóvember síðastliðinn.
Ásta er menntaður hjúkrunarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og lauk MBA-námi frá University of the Highlands and Islands í Skotlandi fyrr á þessu ári. Hún hefur víðtæka reynslu af hjúkrun og stjórnun, bæði hér heima og í Kanada, þar sem hún starfaði meðal annars sem hjúkrunarforstjóri á hjúkrunarheimilum í Ontario-fylki.
Ásta er starfsfólki HSU og starfseminni að góðu kunn, en hún hefur stýrt hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi frá árinu 2023.

