Ásta áfram sveitarstjóri í Bláskógabyggð

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar ásamt Ástu sveitarstjóra á fyrsta fundi sínum. Ljósmynd/Aðsend

Nýkjörin sveitarstjórn Bláskógabyggðar kom saman til fyrsta fundar hinn 1. júní síðastliðinn.

Á fundinum var skipað í embætti innan sveitarstjórnar og verður Helgi Kjartansson oddviti sveitarstjórnar í 50% starfi hjá sveitarfélaginu og Stefanía Hákonardóttir verður varaoddviti ásamt því að sinna formennsku í framkvæmda- og veitunefnd.

Samþykkt var að ráða Ástu Stefánsdóttur til áframhaldandi starfa sem sveitarstjóri.

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar skipa fimm fulltrúar T-lista og tveir fulltrúar Þ-lista.

Fyrri greinRaggi Nat kominn heim
Næsta greinVilius heiðraður í heimabænum