Árborg selur íbúð á Eyrarbakka

Eyrarbakki. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum í vikunni kauptilboð í parhúsaíbúð við Hulduhól á Eyrarbakka.

Fjögur tilboð bárust í eignina og samþykkti bæjarráð að taka tilboði frá Ómari Einarssyni, að upphæð 34 milljónir króna, en tilboð Ómars var án allra fyrirvara.

Á fundinum veitti bæjarráð Fjólu St. Kristinsdóttur, bæjarstjóra, umboð til undirrita öll nauðsynleg skjöl vegna sölunnar.

Fyrri greinFyrsti sigur Uppsveita – Hamar skoraði sjö
Næsta greinSkjálfti í Mýrdalsjökli fannst á Hvolsvelli