Árborg fékk viðurkenningu fyrir metnaðarfullar umbætur í stafrænni þjónustu

Fjóla St. Kristinsdóttir bæjarstjóri og Sigríður Magnea Björgvinsdóttir, verkefnastjóri stafrænnar þróunar hjá Árborg, tóku við viðurkenningunni. Ljósmynd/Árborg

Sveitarfélagið Árborg fékk sérstaka viðurkenningu þegar Nýsköpunarverðlaun hins opinbera árið 2024 voru veitt fyrr í vikunni. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi árangur á sviði nýsköpunar í opinberri starfsemi.

Árborg hlaut viðurkenningu fyrir framfaradrifinn metnað á sviði umbóta og stafrænnar þjónustu sveitarfélagsins. Í erfiðu árferði hefur Árborg lyft grettistaki í stafrænni umbreytingu með fjölbreyttum stafrænum umbótaverkefnum sem hafa skilað bættri yfirsýn stjórnenda á verkefnin og dregið úr álagi starfseminnar.

Aðrir verðlaunahafar voru Reykjavíkurborg og Vestmannaeyjabær sem hlutu sameiginlega viðurkenningu fyrir verkefni varðandi útboð og innleiðingu á velferðartæknilausn og Sýslumenn fengu viðurkenningu fyrir brautryðjendastarf við sjálfvirknivæðingu opinberrar þjónustu, og sérstaklega stafræna málsmeðferð dánarbúa.

Alls bárust vel á fjórða tug tilnefninga en dómnefnd skipuðu fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Fyrri greinDeitað á Dirty Dancing
Næsta greinÍbúafundur um mölunarverksmiðjuna