Árbær verður Hjallastefnuleikskóli

Leikskólinn Árbær á Selfossi. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum í vikunni að Hjallstefnan taki yfir rekstur leikskólans Árbæjar á Selfossi.

Hjallastefnan mun taka yfir daglega stjórn leikskólans frá 2. nóvember næstkomandi en tekur svo við rekstrinum þann 1. ágúst á næsta ári. Samningur þessa efnis verður undirritaður þann 1. nóvember.

Starfsfólki leikskólans hefur verið tilkynnt þessi breyting og boðað hefur verið til kynningarfundar fyrir foreldra barna í Árbæ.

Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir að foreldrar muni greiða sömu leikskólagjöld og þjónusta frá fjölskyldusviði Árborgar mun vera með sama hætti og í öðrum leikskólum Árborgar.

Í Árborg eru reknir sex leikskólar. Í nýlegri foreldrakönnun var meirihluti foreldra sem höfðu jákvætt viðhorf til að geta valið leikskóla sem starfar eftir hugmyndafræði Hjallastefnunar í Árborg.

Fyrri greinOpið varðveisluhús í Byggðasafninu
Næsta greinVeitingastað lokað eftir innbrot og hnífaárás