Áramótabrennur á Suðurlandi

Árið 2013 verður kvatt með brennum og flugeldasýningum á öllu Suðurlandi síðdegis og að kvöldi gamlársdags.

Áramótabrenna og flugeldasýning verða á bökkum Skaftár á Kirkjubæjarklaustri, neðan við verslunina Kjarval, kl. 21. Í Vík í Mýrdal verður brenna kl. 21 og á meðan á henni stendur fíra Víkverjar upp í glæsilegri flugeldasýningu.

Áramótabrenna verður á Hvolsvelli og verður kveikt í bálkestinum kl. 18 og á Hellu verður brennan kl. 17 á Gaddstaðaflötum. Blysför hefst frá húsi flugbjörgunarsveitarinnar kl. 16:45.

Áramótabrenna verður á Flúðum klukkan 20:30. Verður hún í landi Sunnuhlíðar við tjaldsvæðið og á Borg í Grímsnesi verður kveikt í brennu á golfvellinum kl. 20:30 og hefst flugeldasýning Hjálparsveitarinnar Tintron kl. 21.

Selfyssingar munu kveikja í brennu á gámasvæðinu á Víkurheiði í Sandvíkurhreppi, kl. 16:30.

Á Eyrarbakka er brennan kl. 20 í sandgræðslunni norðan við tjaldstæðin og á Stokkseyri á sama tíma við Arnhólma.

Kl. 20:30 verður áramótabrenna í Þverbrekkum í Hveragerði og flugeldasýning í umsjón HSSH og í Þorlákshöfn verður brenna kl. 17 og flugeldasýning kl. 17:30 á svæðinu fyrir ofan Skötubót.

Fólki er bent á að fylgjast vel með fréttum ef veðurspá er slæm.

Fyrri greinErfið slysahelgi að baki
Næsta greinSiggeir Ingólfsson Sunnlendingur ársins 2013