Alvarlegt hestaslys í Bláskógabyggð

Þyrla Landhelgisgæslunnar. Mynd úr safni. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Á þriðja tímanum í dag var barst Neyðarlínunni tilkynning um alvarlegt hestaslys í Bláskógabyggð.

Lögregla og sjúkralið brugðust við til aðstoðar auk þess sem kallað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flytur hinn slasaða, sem er á barnsaldri, á sjúkrahús í Reykjavík.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi er sagt að talið sé að betur hafi farið en á horfðist við fyrstu tilkynningu og vonir standi til þess að áverkar reynist minniháttar.

Fyrri greinReyndu að vinna eins lítið og þú getur
Næsta greinÁrborg skoraði átta – KFR vann nauðsynlegan sigur