Álfheiður leiðir Pírata – Smári í heiðurssætinu

Þrjú efstu hjá Pírötum, (f.v.) Lind, Álfheiður og Hrafnkell.

Píratar í Suðurkjördæmi hafa birt framboðslista sinn fyrir komandi alþingiskosningar. Álfheiður Eymarsdóttir, stjórnmálafræðingur á Selfossi, leiðir listann en hún sigraði í prófkjöri Pírata í Suðurkjördæmi í mars síðastliðnum.

Álfheiður hefur verið varaþingmaður Pírata á yfirstandandi kjörtímabili, en Smári McCarthy núverandi oddviti Pírata í Suðurkjördæmi, gaf ekki kost á sér í framboð og skipar hann heiðurssæti listans.

Fjögur efstu í prófkjörinu í vor skipa fjögur efstu sætin en listinn í heild sinni er eftirfarandi:

1. Álfheiður Eymarsdóttir, stjórnmálafræðingur
2. Lind Draumland Völundardóttir, framhaldsskólakennari
3. Hrafnkell Brimar Hallmundsson, fornleifa- og tölvunarfræðingur
4. Eyþór Máni Steinarsson, frumkvöðull og nemi
5. Einar Bjarni Sigurpálsson, pípulagningameistari
6. Tinna Helgadóttir, háskólanemi
7. Ingimundur Stefánsson, auðlindafræðingur
8. Margret Sigrun Þórólfsdóttir, leik- og grunnskólakennari
9. Ragnheiður Pálsdóttir, háskólanemi
10. Þórólfur Júlían Dagsson, fisktæknir
11. Kristinn Ágúst Eggertsson, deildarstjóri
12. Fanný Þórsdóttir, bókasafnsfræðingur
13. Sigurður Ágúst Hreggvidsson, varabæjarfulltrúi
14. Ólafur Ingi Brandsson, öryrki
15. Gísli Magnússon, tónlistarmaður
16. Skrýmir Árnason, framhaldsskólakennari
17. Rakel Bergmann Rúnarsdóttir, félagsliði
18. Kolbrún Valbergsdóttir, rithöfundur
19. Hallmundur Kristinsson, hundraðþjalasmiður
20. Smári McCarthy, fráfarandi Alþingismaður

Fyrri greinÆgir upp í 2. sætið
Næsta greinFiskur og fjallagrös