150 ár frá fæðingu Einars Jónssonar

Skilti um listamanninn var afhjúpað í miðbænum, við Öldu aldanna. Ljósmynd/Aldís Hafsteinsdóttir

Í ár eru 150 ár liðin frá fæðingu Einars Jónssonar, myndhöggvara, eins þekktasta listamans þjóðarinnar. Einar var fæddur að Galtafelli í Hrunamannahreppi þann 11. maí árið 1874 og af þessu tilefni buðu Hrunamenn buðu til samkomu síðastliðinn sunnudag.

Fyrst voru erindi flutt í Hrepphólakirkju af Sigurði Jónssyni, bónda í Ásgerði og nágranna Einars, en hann fjallaði um ætt og uppruna Einars auk þess að segja viðstöddum frá kynnum sinum af listamanninum. Sigurður Trausti Traustason formaður stjórnar Listasafns Einars Jónsson, flutti erindi um listamanninn og verkin hans og að lokum fjallaði Pétur Ármannsson, arkitekt, um áhrif Einars á íslenska byggingalist auk þess sem ungmenni úr Flúðaskóla, Íris og Valgeir, fluttu tónlistaratriði.

Einar Jónsson.

Að lokinni stundinni í kirkjunni vitjuðu gestir leiðis þeirra hjóna Önnu og Einars í Hrepphólakirkjugarði áður en haldið var að Flúðum þar sem skilti um listamanninn var afhjúpað í miðbænum, við Öldu aldanna, höggmyndar Einars sem þar hefur staðið frá árinu 1977.

Að lokum þáðu gestir svo kaffi og með því í boði Hrunamannahrepps. Meðfylgjandi myndir voru teknar á samkomunni.

Sigurður Jónsson sagði frá Einari og kynnum sínum af honum. Ljósmynd/Aldís Hafsteinsdóttir
Gestir vitjuðu leiðis Einars og Önnu í Hrepphólakirkjugarði. Ljósmynd/Aldís Hafsteinsdóttir
Fyrri greinSamningur um landgræðsluskóga endurnýjaður
Næsta greinHeimsókn frá grænlenska íþróttasambandinu