Frábærir tónleikar í fokheldum sal

Það voru sáttir tónleikagestir sem fóru úr menningarsalnum í Hótel Selfossi í gærkvöldi eftir vel heppnaða tónleika ungra hljómsveita af svæðinu.

Tónleikarnir sem voru hluti að menningarmánuðinum október hófust með hljómsveitinni Waveland og þurfti að bæta við stólum í salinn svo allir gestir hefðu sæti. Næstir á svið voru Kiriyama Family sem vöktu mikla lukku meðal gesta.

Aragrúi steig næst á svið en þar er á ferð mjög efnileg hljómsveit sem stóð sig vel í Músíktilraunum sl. vor og var Hulda söngkona m.a. valin besti söngvarinn. RetRoBot sem unnu Músíktilraunirnar 2012 spiluðu svo nokkur lög áður en The Wicked Strangers lokuðu kvöldinu með heljarinnar látum.

Frábært kvöld og það er ótrúlegt hvað hægt er að gera í menningarsalnum þótt hann sé ennþá fokheldur. Kjartan Björnsson, formaður íþrótta- og menningarnefndar afhenti svo Bassa Ólafssyni, trommuleikara Kiriyama Family, smá þakklætisvott í lok tónleikanna en Bassi sá að mestu um skipulagninguna f.h. ungmennahússins sem kom að kvöldinu ásamt íþrótta- og menningarnefnd Árborgar og EB kerfum sem unnu þrekvirki í að breyta fokheldum salnum í flottan tónleikasal.

Fyrri greinRjúpnaveiðin hefst í dag
Næsta greinÞingmenn í heimsókn á Selfossi