Það er ákveðin áfangi að klára fyrstu mánuði hvers kjörtímabil. Setur tóninn fyrir það sem koma skal í þjónustu við íbúa og uppbyggingu samfélags. Hér í Árborg hefur meirihluti Sjálfstæðisflokksins (D-listans) ekki setið auðum höndum, enda stoltur hluti af góðri ellefu manna bæjarstjórn sem vill láta verkin tala.
Hér að neðan má sjá nokkur af þeim verkefnum sem hafa fengið afgreiðslu og farveg innan Sveitarfélagsins Árborgar á þessum fyrstu mánuðum.
- Fyrsta sveitarfélagið sem ákvað að gjaldskrá hækki ekki umfram 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands fyrir árið 2027.
- Afnámum byggingarréttargjöld af atvinnulóðum.
- Lækkuðum byggingarrétt af íbúðarlóðum um 30-40%.
- Settum af stað rýni á stjórnsýslu sveitarfélagsins sem á að ljúka í nóvember 2026.
- Höfum náð að bjóða börnum, fædd í lok júní 2025 leikskólapláss.
- Samþykkt að endurskoða aðalskipulag Árborgar.
- Einfaldað almenningsamgöngur og bætt skipulag tómstundaaksturs milli byggðarkjarna
og innan Selfoss. - Deiliskipulagt fleiri atvinnulóðir og hafið samtal við Flóahrepp um uppbyggingu
atvinnusvæðis austan við Selfoss. - Sett nýtt deiliskipulag fyrir framtíðartjaldsvæði í auglýsingu.
- Klárað endurhönnun skólalóðar við Vallaskóla.
- Haldið skólaþing um mótun framtíðarsskólastarfs fyrir Barnaskólann á Eyrarbakka og
Stokkseyri. - Opnað félagsmiðstöð innan Stekkjaskóla.
- Hafið endurbætur á félagsaðstöðu í Grænumörk.
- Aukið vægi menningarmála með stofnun menningarnefndar.
- Átt samtöl og hafið frumvinnu við orkuöflun af nýjum svæðum fyrir Selfossveitur.
Þetta er aðeins hluti af þeim verkefnum sem bæjarstjórn og starfsmenn sveitarfélagsins hafa unnið að undanfarnar vikur og mánuði. Í sameiningu munum við halda áfram að bæta lífsgæði íbúa í Sveitarfélaginu Árborg.
Hvetjum annars alla til að taka þátt í síðustu viku menningarmánaðarins október sem er nú í fullum gangi. Fjölbreyttir viðburðir fyrir alla fjölskylduna. Föstudaginn 30. október eru síðan bæði Leikfélag Eyrarbakka og Leikfélag Selfoss að frumsýna ný leikverk sem verða sýnd næstu vikurnar.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Árborg
Bragi Bjarnason
Brynhildur Jónsdóttir
Kjartan Björnsson
Linda Björk Hilmarsdóttir
Sveinn Ægir Birgisson
Þórhildur Dröfn Ingvadóttir

