Nýtum kosningaréttinn!

Kæru Sunnlendingar, undanfarnar vikur hafa verið einstaklega lærdómsríkar og gefandi. Ég tel þær jafnframt hafa verið fallega æfingu í lýðræðislegum vinnubrögðum og gaman hefur verið að kynnast öllum þessum ólíku frambjóðendum.

Framboði til forseta fylgja þau forréttindi að fá tækifæri til að hitta fjölbreytta flóru fólks á öllum aldri og hvaðanæva af landinu. Við Björn þökkum þær góðu og hlýju móttökur sem við fengum alls staðar þar sem við komum. Þær eru ógleymanlegar og við tökum vinsemd ykkar áfram með okkur gegnum lífið.

Nú er komið að ykkur kæru landsmenn. Kosningarétturinn er dýrmætur, ekki sjálfgefinn heldur byggður á baráttu þeirra sem á undan gengu. Hver rödd er dýrmæt. Í forsetakosningum vega öll atkvæði jafnt – nýtið atkvæðisréttinn og leggið ykkar lóð á vogarskálarnar við val á sjöunda forseta lýðveldisins Íslands.

Takk fyrir góðar móttökur.

Halla Tómasdóttir

Fyrri grein„Þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef gert“
Næsta greinStokkseyringar stóðu í ströngu