Nýliðunarstuðningur — fyrri leiga getur útilokað stuðning við kaup á búrekstri

Nýliðar í landbúnaði geta fengið stuðning við kaup á búrekstri. Hafi þeir áður leigt sama búrekstur getur sá tími þó orðið til þess að þeir teljist ekki lengur nýliðar þegar kaupin fara fram. Þannig getur reynsla af rekstrinum fyrir kaup skert möguleikann á stuðningi við fjárfestinguna.

Þetta kemur fram í svörum Atvinnuvegaráðuneytisins sem Ragnheiður Hallgrímsdóttir bóndi hefur birt opinberlega. Hún og Ingvar Jóhannsson tóku búrekstur á leigu í ársbyrjun 2022 og keyptu jörðina, kvótann og reksturinn í ágúst 2025. Þau fengu nýliðunarstuðning árið 2025 en teljast samkvæmt niðurstöðu ráðuneytisins ekki lengur nýliðar árið 2026.

Ráðuneytið miðar við upphaf leigunnar og segir framkvæmdina óbreytta frá 2017. Árið 2025 hafi þau enn verið innan tímamarkanna en árið 2026 séu þau utan þeirra. Samþykkt fyrri umsóknar og niðurstaðan nú þurfa því ekki að stangast á samkvæmt þeirri skýringu.

Frá leigu til kaupa
Eftir stendur spurning um samspil skilyrðanna. Við umsókn um stuðning vegna kaupa þarf að leggja fram gögn um fjárfestinguna. Fyrri leiga getur þó ráðið því að kaupandinn teljist ekki lengur nýliði þegar til kaupanna kemur.

Leiga getur verið skynsamleg leið inn í búskap. Hún gefur fólki reynslu af rekstrinum áður en ráðist er í kaup og þær skuldbindingar sem þeim fylgja. Hvers vegna er stuðningurinn þannig hannaður að þessi undirbúningur getur útilokað stuðning þegar skrefið til eignar er tekið? Þá þarf einnig að skýra hvaða skilyrði gilda um áframhaldandi búrekstur eftir úthlutun. Hvernig er farið með stuðning ef leigjandi hættir búskap og segir upp samningi? Það þarf að skoða skilyrðin saman til að meta hvort þau styðji við varanlega nýliðun og ættliðaskipti.

Frá leigu til kaupa
Eftir stendur spurning um samspil skilyrðanna. Við umsókn um stuðning vegna kaupa þarf að leggja fram gögn um fjárfestinguna. Fyrri leiga getur þó ráðið því að kaupandinn teljist ekki lengur nýliði þegar til kaupanna kemur.

Leiga getur verið skynsamleg leið inn í búskap. Hún gefur fólki reynslu af rekstrinum áður en ráðist er í kaup og þær skuldbindingar sem þeim fylgja. Hvers vegna er stuðningurinn þannig hannaður að þessi undirbúningur getur útilokað stuðning þegar skrefið til eignar er tekið?

Þá þarf einnig að skýra hvaða skilyrði gilda um áframhaldandi búrekstur eftir úthlutun. Hvernig er farið með stuðning ef leigjandi hættir búskap og segir upp samningi? Það þarf að skoða skilyrðin saman til að meta hvort þau styðji við varanlega nýliðun og ættliðaskipti. Jafnframt þarf að skoða hvort reglurnar taki nægilegt mið af því að fólk byrji búskap á leigujörð áður en það ræðst í kaup.

Ráðgjöf og ábyrgð
Áður en gengið var frá kaupunum leituðu þau ráðgjafar hjá RML og var ráðlagt að bíða með umsókn þar til kaupin væru frágengin. Í rekstraráætluninni sem lögð var fram við fjármögnun kaupanna var gert ráð fyrir nýliðunarstuðningi fyrstu árin.

Um ráðgjöfina segir ráðuneytið: „Atvinnuvegaráðuneytið getur ekki ábyrgst að ráðgjöf utanaðkomandi aðila sé ætíð í samræmi við lög, reglur eða verklag ráðuneytisins.“

Ráðgjafi ber ábyrgð á eigin ráðgjöf. En ráðuneytið krefst rekstraráætlunar frá fagaðila og nefnir RML sérstaklega sem dæmi í reglugerðinni. Hvaða leiðbeiningar og samskipti fylgja því fyrirkomulagi? Hvernig fá ráðgjafar túlkun skilyrðanna staðfesta áður en fólk tekur fjárhagslegar ákvarðanir? Afstaða RML til þessara atriða þarf einnig að liggja fyrir.

Umsóknarkerfið vekur sjálfstæðar spurningar. Það stöðvaði innsendingu umsóknarinnar. Ráðuneytið upplýsir nú að umsóknir sem berast í tölvupósti innan frests séu teknar til afgreiðslu. Sú leið kemur ekki fram í stöðvunartextanum sem það birtir. Umsækjandi þarf að fá þær upplýsingar þegar kerfið stöðvar hann.

Í fyrri grein hér á Sunnlenska var spurt hver bæri ábyrgð á forsendunum sem nýliðarnir byggðu ákvarðanir sínar á. Svör ráðuneytisins gefa ástæðu til að fylgja þeim spurningum eftir. Það nægir ekki að skýra tímamörkin og vísa til ábyrgðar utanaðkomandi ráðgjafa. Enn þarf að skýra hvernig ráðgjöfin, rekstraráætlunin og framkvæmd stuðningsins fóru ekki saman og hvað verði gert til að koma í veg fyrir að fleiri lendi í sömu stöðu.

Erna Bjarnadóttir
Hagfræðingur

Fyrri greinMagnús hlaut menningarviðurkenningu Árborgar
Næsta greinHnífjafnt í Breiðholtinu