Milljarðaálögur á óskrifaðan reikning

Sex til sjö milljarðar króna á ári. Það er upphæðin sem ríkisstjórnin hyggst innheimta með náttúru- og innviðagjaldi við Þingvelli, Geysi, Gullfoss og hvergi annarsstaðar á landinu. Þrír staðir á Gullna hringnum eiga einir þannig að standa undir nýrri tekjuöflun ríkissjóðs af stærðargráðu sem kallar á vandaðan undirbúning og skýrar forsendur. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ber pólitíska ábyrgð á þessum áformum.

En hvar er heildstæða áhrifamatið? Hvar eru útreikningarnir sem sýna hvað gjaldtakan gerir eftirspurn, rekstri fyrirtækja, störfum og tekjum sveitarfélaga? Hvar er matið á því hvort auknar tekjur af nýjum skatti geti að hluta tapast annars staðar?

Á meðan ráðherrann leggur ekki slík gögn á borðið stendur eftir alvarlegur brestur í undirbúningi málsins. Að boða milljarðaálögur á afmarkað svæði án þess að sýna fram á afleiðingarnar er ófaglegt. Að ætlast síðan til þess að fyrirtæki og sveitarfélög sætti sig við óvissuna er óboðlegt.

Tekjuáætlun er ekki áhrifamat
Það er hægt að margfalda áætlaðan gestafjölda með fyrirhuguðu gjaldi og fá glæsilega tölu í ríkisreikningnum. Sú reikningsæfing svarar hins vegar ekki mikilvægustu spurningunni: Hvernig bregst fólk við hærra verði?

Ferðamenn hafa val. Þeir geta breytt ferðaáætlun, sleppt viðkomustöðum eða dregið úr öðrum útgjöldum. Hversu mikil þau viðbrögð verða þarf að rannsaka. Ekki afgreiða með bjartsýni ráðherra.

Gullni hringurinn er jafnframt meira en þrír áfangastaðir á korti. Hann tengir saman gistingu, veitingarekstur, afþreyingu, verslun og þjónustu. Þar hefur fólk lagt sparnað sinn, vinnu og framtíðaráform undir. Áhrif gjaldtöku við náttúruperlurnar geta því borist langt út fyrir mörk innheimtusvæðanna.

Í samráðsferlinu hafa fyrirtæki, sveitarfélög og samtök kallað eftir heildstæðara mati á afleiðingunum. Slíkar athugasemdir kalla á efnisleg svör og gögn.

Ríkisstjórnin getur ekki látið samfélög á Suðurlandi bera áhættuna af forsendum sem hún hefur ekki sýnt fram á að standist. Það er auðvelt að ráðstafa væntum tekjum annarra. Ábyrgðin byrjar á því að kanna hvað tekjuöflunin kostar.

Hanna Katrín verður að leggja spilin á borðið
Hanna Katrín þarf að svara einfaldri kröfu: Leggðu fram heildstætt, opinbert áhrifamat áður en málið fer lengra. Þar þarf að greina mismunandi sviðsmyndir um eftirspurn, samkeppnishæfni, atvinnu, byggðaþróun og heildartekjur hins opinbera.

Sérstaklega þarf að skýra hvers vegna réttlætanlegt sé að hefja þessa tekjuöflun á svo þröngt afmörkuðu svæði. Fyrirheit um að fleiri staðir bætist síðar við svara ekki spurningunni um áhrif fyrstu skrefanna.

Enginn gerir lítið úr þörfinni fyrir náttúruvernd og góða innviði. En göfug markmið veita ráðherra ekki undanþágu frá faglegum vinnubrögðum. Nafnið á gjaldinu leysir hana heldur ekki undan því að rannsaka efnahagslegar afleiðingar þess.

Samráð á að geta breytt niðurstöðu. Það má ekki verða formsatriði utan um tekjuöflun sem þegar hefur verið ákveðin.

Hanna Katrín verður því að stöðva framgang málsins þar til forsendurnar hafa verið rannsakaðar og niðurstöðurnar birtar. Sex til sjö milljarða gjaldtaka krefst meira en pólitísks vilja. Hún krefst þekkingar, rökstuðnings og ábyrgðar. Suðurland á heimtingu á því að heimavinnan sé unnin áður en reikningurinn er sendur.

Guðmundur Finnbogason, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps
Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri og oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar
Jón Bjarnason, oddviti Hrunamannahrepps

Fyrri greinMarkaðsstofan heldur vinnustofur um mótun ferðaleiðar