Hvað leynist í sjónum við Þorlákshöfn?

Ljósmynd/Aðsend

Mengun frá hafnarstarfsemi og hvernig hægt er að draga úr henni

Þorlákshöfn er einn af þeim stöðum á Íslandi þar sem hafið skiptir miklu máli fyrir atvinnulíf og samfélagið. Þar er mikil hafnarstarfsemi og skip koma og fara reglulega. En með þessari starfsemi getur líka fylgt mikil mengun. Plast, rusl og gömul veiðarfæri geta borist í sjóinn og haft slæm áhrif á lífið sem er í sjónum. Þess vegna er mikilvægt að skoða hvernig hægt er að koma í veg fyrir sá mengun við höfnina.

Hvaðan kemur mengunin?
Við hafnir getur myndast ýmiss konar úrgangur. Þar má nefna plastumbúðir, kaðla, net, bönd og annað rusl sem tengist starfsemi skipa og hafna. Ef ekki er gengið rétt frá þessum hlutum geta þeir fokið út í sjó eða borist þangað með vatni. Rusl getur einnig komið frá fólki á landi og öðrum svæðum í nágrenninu.

Sérstaklega er mikilvægt að passa upp á plast því það getur verið mjög lengi í náttúrunni. Með tímanum getur plast brotnað niður í smærri agnir sem kallast örplast. Þessar agnir geta dreifst um hafið og er erfitt að fjarlægja.

Hvaða áhrif hefur mengunin?
Mengun í sjónum getur haft alvarleg áhrif á dýr og umhverfi. Fuglar og fiskar geta ruglað plasti saman við fæðu og borðað það. Það getur valdið alvarlegum meiðslum og jafnvel dauða.

Gömul veiðarfæri geta einnig verið hættuleg. Fiskar, fuglar, selir og önnur sjávardýr geta flækst í netum og köðlum sem hafa tapast eða verið skildir eftir í sjónum. Þetta getur komið í veg fyrir að dýrin geti synt eða hreyft sig.

Hvað er hægt að gera betur?
Ein leið til að draga úr mengun er að tryggja að nægilega góð aðstaða sé fyrir flokkun og söfnun úrgangs. Einnig væri hægt að setja upp fræðsluskilti sem minna fólk á mikilvægi þess að henda ekki rusli í náttúruna.

Reglulegar hreinsanir á hafnarsvæðinu og í fjörunni gætu einnig hjálpað. Starfsmenn og íbúar gætu tekið þátt í slíkum verkefnum.

Hafið er mikilvægur hluti af Þorlákshöfn og þess vegna skiptir máli að vernda það. Með góðri umgengni, fræðslu og ábyrgð getum við öll hjálpað til við að halda sjónum hreinum fyrir komandi kynslóðir.

Ljósmynd/Aðsend

Greinargerð – Mengun við höfnina í Þorlákshöfn

Ástæða fyrir vali á viðfangsefni
Við ákváðum að fjalla um mengun við höfnina í Þorlákshöfn vegna þess að við búum í bænum og hafið er mikilvægur hluti af nærumhverfi okkar. Við vildum velja viðfangsefni sem tengdist okkar heimabyggð og væri hægt að rannsaka nánar. Okkur fannst áhugavert að skoða hvernig rusl og úrgangur frá hafnarstarfsemi getur borist í sjóinn og hvaða áhrif það getur haft á lífið sem er í sjónum.

Við ákváðum að leggja mesta áherslu á plast, kaðla, net og annan úrgang sem getur tengst hafnarstarfsemi. Við vildum einnig skoða hvaða leiðir væru til að koma í veg fyrir slíka mengun.

Vinnuferlið
Við völdum að gera blaðagrein vegna þess að okkur fannst það góð leið til að fræða fólk um vandamálið. Við byrjuðum á því að afla upplýsinga um plastmengun, hafnarstarfsemi og áhrif úrgangs á sjávardýr.

Við notuðum meðal annars upplýsingar frá Hafrannsóknastofnun, Umhverfis- og orkustofnun og Sveitarfélaginu Ölfusi. Þessar heimildir hjálpuðu okkur að skilja hvaðan mengun getur komið og hvað er gert til að draga úr henni.

Við skipulögðum einnig vettvangsathugun við höfnina þar sem markmiðið var að skoða rusl, taka ljósmyndir og athuga hvernig úrgangssöfnun er háttað. Við vildum tengja upplýsingarnar úr heimildunum við raunverulegar aðstæður í Þorlákshöfn.

Niðurstöður og lausnir
Við heimildavinnuna komumst við að því að plastmengun frá fiskveiðum er þekkt vandamál. Gömul veiðarfæri og plast geta borist í hafið og haft neikvæð áhrif á dýralíf. Plast getur einnig brotnað niður í örplast sem er erfitt að fjarlægja úr umhverfinu.

Við komumst líka að því að til er áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs frá skipum í Þorlákshöfn. Það sýnir að úrgangsmál eru mikilvægur þáttur í starfsemi hafnarinnar.

Okkar tillögur eru að leggja áherslu á góða flokkun, reglulega hreinsun og fræðslu um mengun. Einnig teljum við mikilvægt að skoða reglulega hvort núverandi aðstaða fyrir úrgang sé nægileg.

Tengsl við heimsmarkmiðin
Verkefnið tengist sérstaklega heimsmarkmiði 14, Lífi í vatni, vegna þess að markmið þess er meðal annars að draga úr mengun hafsins og vernda lífríkið.

Það tengist einnig heimsmarkmiði 12, Ábyrgri neyslu og framleiðslu, þar sem rétt meðhöndlun úrgangs og endurvinnsla skipta miklu máli.

Að lokum tengist það heimsmarkmiði 11, Sjálfbærum borgum og samfélögum, því hrein og örugg hafnarsvæði eru mikilvæg fyrir nærumhverfið.

Hvað lærðum við?
Við lærðum að mengun hafsins getur komið frá mörgum mismunandi stöðum og að jafnvel litlir plasthlutir geta haft stór áhrif á náttúruna. Við áttuðum okkur einnig á því hversu mikilvægt er að koma í veg fyrir að rusl berist í sjóinn.

Verkefnið sýndi okkur að það er hægt að byrja á litlum breytingum í eigin nærumhverfi til að stuðla að betri umgengni við hafið.

Oliver Þór Stefánsson
Baldur Böðvar Torfason og
Þorbergur Gunnar Ingólfsson
Nemendur í landafræði við Fjölbrautaskóla Suðurlands

Heimildaskrá
Hafrannsóknastofnun. (2026, 26. janúar). Alþjóðleg vinnustofa um afföll og mengun
frá veiðarfærum. https://www.hafogvatn.is/is/midlun/frettir-og-tilkynningar/althjodleg-
vinnustofa-um-affoll-og-mengun-fra-veidarfaerum
Hafrannsóknastofnun. (2019). Plast í hafinu við Ísland.
https://www.hafogvatn.is/is/moya/news/rannsoknir-hafrannsoknastofnunar-a-plasti-i-
hafi
Hafnarsjóður Þorlákshafnar. (2020). Þorlákshöfn: Áætlun/lýsing á móttöku og
meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum.
https://www.olfus.is/static/files/Hafnarsjodur/aaetlun-lysing-a-mottoku-og-
medhondlun-urgangs-og-farmleyfa-fra-skipum.pdf

Fyrri greinGetur einhver fugl talað íslensku?