Hvað ef stærsta áhættan er að breyta engu?

Þegar við tökum sæti í sveitarstjórn fáum við tímabundið umboð frá íbúum til að hafa áhrif á samfélagið okkar. Það er ekki sjálfgefið að það umboð vari lengur en fjögur ár og kannski er hollt að hafa það í huga.

Við eigum ekki að taka ákvarðanir með næstu kosningar að leiðarljósi, heldur framtíð samfélagsins. Stundum þýðir það að taka ákvarðanir sem skila ekki sýnilegum árangri fyrr en löngu eftir að okkar kjörtímabili lýkur.

Þegar ég ákvað að gefa kost á mér til sveitarstjórnar var það vegna þess að ég vildi hafa raunveruleg áhrif og leggja mína krafta til góðra verka í samfélaginu okkar. Ég fór ekki í þetta með þá hugmynd að hafa svör við öllu, heldur með vilja til að leggja mitt af mörkum, læra, hlusta og taka þátt í að móta framtíðina.

Árborg er ört vaxandi sveitarfélag. Með vextinum fylgja mikil tækifæri en jafnframt áskoranir. Þarfir íbúa breytast, atvinnulífið þróast og kröfur til innviða og þjónustu aukast. Við getum því ekki gengið út frá því að lausnir gærdagsins séu endilega þær réttu fyrir morgundaginn.

Samt heyrast gjarnan setningar eins og:

„Þetta hefur alltaf verið svona.“

„Þetta hefur verið reynt áður.“

„Fólk verður ósátt ef við breytum þessu.“

Það er skiljanlegt að breytingar veki spurningar og jafnvel ótta. Þær geta raskað því sem við þekkjum og höfum vanist. En óttinn við viðbrögðin má ekki verða til þess að við veigrum okkur við að taka nauðsynlegar ákvarðanir.

Það er líka áhætta að gera ekkert
Við tölum gjarnan um áhættuna sem fylgir breytingum en sjaldnar um áhættuna sem fylgir því að halda öllu óbreyttu.

Það er nefnilega líka ákvörðun að gera ekkert.

Í sveitarfélagi sem vex jafn hratt og Árborg getur sú ákvörðun haft afleiðingar. Innviðir geta orðið á eftir uppbyggingunni, tækifæri glatast og verkefni sem við vitum að þarf að leysa færast sífellt lengra inn í framtíðina. Það sem virðist auðveldasta leiðin í dag getur orðið sú dýrasta á morgun.

Þess vegna þurfum við ekki aðeins að spyrja hvað gerist ef við breytum, heldur líka hvað gerist ef við gerum það ekki.

Hugrekki felst þó ekki alltaf í því að breyta. Stundum er rétt að standa vörð um það sem hefur reynst vel. En við verðum að vera tilbúin að endurskoða ákvarðanir þegar forsendurnar hafa breyst og hafa kjark til að viðurkenna að aðrar leiðir kunni að vera betri í dag.

Þarna reynir á forystu.

Við eigum að hlusta á íbúa, taka ólík sjónarmið alvarlega og vanda undirbúning ákvarðana. Samráð er grundvallaratriði, en það þýðir ekki að allir verði alltaf sammála niðurstöðunni.

Ég geri mér fulla grein fyrir því að ekki verða allar ákvarðanir auðveldar eða vinsælar. En ef við ætlum að hafa raunveruleg áhrif getum við ekki alltaf valið leiðina sem mætir minnstu mótstöðunni.

Mörg af stærstu verkefnum Árborgar verða ekki leyst á einu kjörtímabili.

Skipulag byggðar, uppbygging innviða, atvinnusvæði, samgöngur og þjónusta við íbúa eru allt verkefni sem móta samfélagið til áratuga. Ef við hugsum eingöngu í fjögurra ára lotum er hætt við að nauðsynlegum ákvörðunum sé sífellt frestað.

Við þurfum því að vera tilbúin að leggja grunn að einhverju sem við sjálf fáum jafnvel ekki að klára.

Bæjarstjórn hefur nú veitt heimild til að hefja undirbúning að endurskoðun aðalskipulags Árborgar. Sem formaður skipulagsnefndar sé ég þar bæði stórt tækifæri og mikla ábyrgð.

Aðalskipulag er ekki bara kort, landnotkun og reglur um uppbyggingu. Það snýst um hvernig samfélag við viljum byggja til framtíðar.

Hvar viljum við að byggð þróist? Hvernig tryggjum við að skólar, samgöngur og önnur þjónusta haldi í við fjölgun íbúa? Hvernig sköpum við aðstæður fyrir öflugt atvinnulíf og gott fjölskyldulíf? Og hvernig tryggjum við að ákvarðanir sem við tökum í dag standist þarfir komandi kynslóða?

Þetta eru ekki aðeins skipulagslegar spurningar. Þær snerta daglegt líf okkar allra.

Endurskoðun aðalskipulags gefur okkur jafnframt tækifæri til að horfa á heildarmyndina og spyrja hvort við séum enn á réttri leið.

Erum við tilbúin að opna aftur umræðu um mál sem hafa strandað eða legið óhreyfð árum saman? Skoða ákvarðanir sem voru teknar við aðrar aðstæður og meta hvort forsendur þeirra eigi enn við?

Ekki vegna þess að það sem áður var gert hafi endilega verið rangt, heldur vegna þess að samfélagið hefur breyst og við verðum að þróast með því.

Við eigum ekki að hefja slíka vinnu með fyrirfram ákveðna niðurstöðu. Við eigum að hafa opinn huga, hlusta á ólík sjónarmið og vera tilbúin að skoða nýjar leiðir.

En setningin „þetta hefur alltaf verið svona“ getur aldrei ein og sér verið næg ástæða fyrir því að eitthvað eigi að vera þannig áfram.

Árborg er í þeirri stöðu að við erum enn að móta sveitarfélagið okkar. Vöxturinn gefur okkur tækifæri til að byggja upp öflugt samfélag, en leggur um leið á okkur ábyrgð sem við megum ekki víkja okkur undan.

Við munum ekki alltaf vera sammála um leiðina. Það er eðlilegt og heilbrigt. Í samfélagi þar sem fólk hefur ólíkar skoðanir, þarfir og framtíðarsýn verða alltaf skiptar skoðanir um einstakar ákvarðanir.

En við ættum að geta verið sammála um að framtíð samfélagsins okkar sé þess virði að ræða hana af hreinskilni og með opnum huga.

Við eigum ekki að óttast umræðuna um hvað megi gera betur.

Þegar þessu kjörtímabili lýkur skiptir mig mestu máli að geta horft til baka og vitað að ég hafi nýtt tímann og umboðið vel. Ekki aðeins til að sinna verkefnum dagsins, heldur líka til að leggja grunn að því samfélagi sem við viljum að Árborg verði eftir tíu, tuttugu eða jafnvel fimmtíu ár.

Því stundum er stærsta áhættan ekki að breyta.

Hún er að þora því ekki.

Linda Björk Hilmarsdóttir
Bæjarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar Árborgar

Fyrri greinHSK hlaut Hvatningarverðlaun UMFÍ í þriðja sinn