Í haust hófst skólaár í Fjölbrautaskóla Suðurlands án heimavistar. Nemendur sem koma um langan veg og stunda nám við FSu stóð ekkert búsetuúrræði til boða við skólann. Þetta þýddi langar daglegar ferðir, dýran leigumarkað eða annan skóla.
Þetta hefur verið saga heimavistarinnar í áratug. Leigusamningur um heimavistina á Eyravegi rann út 2016. Síðan hafa nemendur búið í leiguherbergjum, meðal annars á gistiheimilum með ferðamönnum, á samningum sem framlengdir voru ár frá ári. Í svari mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi síðasta vetur kom fram að eftirlitsaðilar hefðu gert formlegar athugasemdir við ástand húsnæðisins.
Sveitarfélögin á Suðurlandi, skólayfirvöld, foreldrar og ungmennaráð hafa ítrekað kallað eftir varanlegri lausn. Sem núna er loksins verið að bregðast við. Í fjárlagafrumvarpi ársins 2027 er loksins sérstök heimild til að kaupa eða leigja húsnæði undir heimavist FSu. Með heimildinni getur ríkið gengið til samninga um húsnæði um leið og hentugur kostur finnst, í stað þess að málið strandi enn einu sinni.
Heimavist snýst um jöfn tækifæri fyrir ungmennin á Suðurlandi. FSu á að þjóna öllu Suðurlandi, ekki bara þeim sem búa í akstursfjarlægð.
Heimildin er fyrsta skrefið, ekki það síðasta. Nú þarf að nýta hana hratt, í góðu samstarfi við sveitarfélögin og skólann. Nemendurnir hafa beðið nógu lengi.
Sandra Sigurðardóttir
Þingmaður Viðreisnar – Suðurkjördæmi

