Það hefur verið líf og fjör á motocrossbrautinni hjá okkur í sumar sem er staðsett rétt austan við Hellu. Þar hafa börn og ungmenni komið saman til að æfa, læra á hjólin sín og hafa gaman. Það hefur verið einstaklega ánægjulegt að fylgjast með því hvernig starfið hefur þróast og vaxið.
Svæðið var opnað sumarið 2023 og þar eru þrjár mismunandi brautir. Sú minnsta er púkabraut án stökkpalla, ætluð yngstu krökkunum sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni. Svo er byrjendabraut með beygjum og stökkpöllum þar sem hægt er að öðlast meiri færni og öryggi áður en farið er á stærstu brautina, sem er 1,9 km löggild keppnisbraut sem er einstök hér á landi þar sem hún hefur margskonar jarðveg, svosem lausan fínan sand, grófan sand, möl og mold.

Það hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með uppbyggingunni sem hefur verið hjá Ungmennafélagi Heklu í jaðaríþróttum, í sumar bauð félagið upp á námskeið þar sem kennt var einu sinni í viku og tóku hátt í 30 iðkendur þátt. Aldursbilið var ótrúlega breitt, allt frá fjögurra ára börnum upp í tvítug ungmenni. Það segir líka sína sögu að þátttakendur komu ekki bara úr Rangárþingi ytra heldur víða að, allt frá uppsveitum Árnessýslu og austur að Vík í Mýrdal
Æfingarnar héldu áfram fram á haustið og var þátttakan áfram góð. Umf Hekla stefnir að því að halda starfinu áfram yfir veturinn þar sem einbeitt verður meðal annars á styrktarþjálfun. Það er jákvætt að sjá þá heildrænu hugsun sem einkennir uppbyggingu íþróttarinnar þar sem motocross snýst um meira enn að kunna keyra mótorhjólið. Hér er ekki aðeins lögð áhersla á akstursfærni heldur einnig líkamlega þjálfun, fræðslu og persónulegan þroska. Með þessu er skapaður vettvangur þar sem iðkendur fá tækifæri til að læra, vaxa og efla sig innan íþróttarinnar.

Umsjón með æfingunum hefur verið í höndum Alexanders Adams Kuc, tvítugs motocrossökumanns frá Selfossi sem hefur meðal annars orðið Íslandsmeistari og keppt fyrir Íslands hönd á Motocross of Nations. Það er mikill styrkur fyrir unga iðkendur að fá að læra af reynslumiklum keppnismanni eins og honum, góðir þjálfarar kenna ekki bara tæknina heldur geta þeir líka hvatt iðkendur áfram, hjálpað þeim að setja sér markmið og öðlast trú á eigin getu.
Ekki finna sig allir á sömu braut
Mér finnst mikilvægt að sveitarfélög styðji við fjölbreytt íþróttastarf og gleymi ekki þeim börnum og ungmennum sem finna sig síður í hefbundnum íþróttagreinum. Jaðaríþróttir eiga þar ekki síður erindi en hefðbundnari íþróttagreinar og því skiptir máli að skapa þeim raunhæf tækifæri til að vaxa og dafna. Með því að stiðja við fjölbreytt íþróttastarf erum við fyrst og fremst að fjárfesta í börnum og ungmennum, áhugamálum þeirra, félagslegri þáttöku og vellíðan. Jafnframt erum við að skapa aðstæður þar sem fleiri geta fundið eitthvað við sitt hæfi, ræktað áhuga sinn, eignast vini og upplifað gleðina sem fylgir því að tilheyra öflugu félagsstarfi.

Fyrir mér snúast íþrótta- og tómstundamál fyrst og fremst um að gefa börnum tækifæri til að finna eitthvað sem þau hafa gaman af. Eitthvað sem fær þau til að hlakka til næstu æfingar, kynnast nýjum vinum og finna að þau tilheyri hópi. Motocrossstarf Umf Heklu er gott dæmi um uppbyggingu sem hefur skapað ný tækifæri fyrri börn og ungmenni, bæði í sveitarfélaginu og nágrenni þess.
Á bak við uppbyggingu sem þessa liggur mikil vinna, metnaður og óeigingjarnt framlag fólks sem hefur trú á því sem það er að gera. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér og því er mikilvægt að við kunnum að meta og styðja við það óeigingjarna starf sem unnið er í þágu barna og ungmenna í sveitarfélaginu.
Ég vil að við höldum áfram að skapa góðar aðstæður fyrir fjölbreytt íþrótta- og tómstundarstarf í Rangárþingi Ytra. Við þurfum ekki öll að hafa sömu áhugamálin eða feta sömu brautir, en það eiga sem flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Erla Sigríður Sigurðardóttir
Sveitarstjórnarfulltrúi Á-listans í Rangárþingi ytra


