Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi

Við sem búum í Hveragerði þekkjum nálægðina við orkuvinnsluna manna best. Við sjáum gufubólstrana rísa upp frá Hellisheiðarvirkjun, Hverahlíð og Folaldahálsi. Auk þess er jarðvarmavirkjun við Bolaöldu í orkunýtingarflokki rammaáætlunar, sem er enn ein virkjunin í okkar nærumhverfi.

Flest höfum við fundið jörðina skjálfa undan niðurdælingunni við Hellisheiðarvirkjun. Við lóð leikskólans Óskalands stendur mælir sem fylgist daglega með brennisteinsvetni og loftgæðum. Nálægðin er ekki fræðileg umræða hjá okkur – hún er hluti af okkar daglega lífi.

Hvíta gatið á kortinu: Þegar fólk er klippt út
Þess vegna eru það mikil vonbrigði að rýna í reiknilíkanið sem fylgir nýju frumvarpi um fasteignaskatt á orkumannvirki. Yfirlýst markmið frumvarpsins er að skila tekjum af virkjunum til þeirra nærsamfélaga sem bera af þeim umhverfis- og nágrennisáhrif. Vandinn er hins vegar sá að reiknilíkanið í núverandi mynd mælir þessi áhrif á auð landsvæði frekar en þéttbýli og fólk.

Samkvæmt útreikningum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar fengi Hveragerði einungis um 1% af skatttekjum Hellisheiðarvirkjunar, eða tæpar 6,2 milljónir króna á ári. Á sama tíma fengju sveitarfélög eins og Kópavogur og Mosfellsbær samanlagt yfir 86 milljónir króna úr sama potti. Íbúar í þeim þéttbýliskjörnum finna varla fyrir manngerðum jarðskjálftum. Þeirra sveitarfélög fá þessa hlutdeild einfaldlega vegna þess að þau eiga víðfeðmt land uppi á heiðum.

Á sama tíma er 100% af landsvæði Hveragerðis innan 15 km áhrifasvæðis Hellisheiðarvirkjunar.

Meðfylgjandi mynd úr reiknilíkaninu segir í raun alla söguna. Bláu punktarnir á kortinu sýna áhrifasvæði Hellisheiðarvirkjunar með 15 km radíus, sem skilar milljónum til óbyggðra heiðarlanda, en Hveragerði (hvíta gatið) er klippt út.

Tvær einfaldar og sanngjarnar leiðréttingar
Þessu þarf að breyta á Alþingi áður en frumvarpið verður að lögum. Lausnin er í grunninn einföld og felst í tveimur atriðum:

  1. Fella þarf niður 5% þröskuldinn í reiknilíkaninu. Eins og Samtök orkusveitarfélaga hafa bent á á hann sér enga stoð í lagatexta frumvarpsins og kemur beinlínis í veg fyrir að landlítil sveitarfélög fái réttmæta hlutdeild.
  2. Lögfesta þarf þéttbýlisstuðul í frumvarpinu. Í dag fá uppistöðulón vatnsaflsvirkjana tífalt vægi hjá ríkinu. Með sama hætti er sjálfsögð krafa að afmarkað þéttbýli innan grunnáhrifasvæðis orkumannvirkja fái tífalt vægi á við óbyggð svæði.

Við höfum fylgt þessu máli eftir af krafti á síðustu vikum. Fulltrúi Okkar Hveragerðis vakti athygli á því hversu gríðarlegt hagsmunamál það er fyrir Hvergerðinga að sækjast eftir aðild að Samtökum orkusveitarfélaga. Í kjölfarið boðaði bæjarstjórn Harald Þór Jónsson, formann Samtaka orkusveitarfélaga, á sinn fund. Þá höfum við kynnt málið og tillögur okkar fyrir öllum þingmönnum Suðurkjördæmis.

Framtíðarsýn á sögulegum grunni
Það er nákvæmlega vegna þessara miklu hagsmuna sem Hveragerði þarf að vera virkur þátttakandi í Samtökum orkusveitarfélaga. Bærinn okkar byggðist upp á þessari auðlind og Hveragerði var eitt af fyrstu svæðunum á Íslandi sem nýttu jarðhitann. Við erum því ekki bara bær sem tekur við umhverfisáhrifum af orkuvinnslu í dag – við erum ákveðin vagga hennar.

Á þessum sögulega grunni eigum við að stíga næstu skref. Við eigum að nýta nálægðina við auðlindina til að gera Hveragerði aftur að framverði í jarðhitamálum; að miðstöð þekkingar, nýsköpunar og jarðvarmarannsókna.

En til að sú framtíðarsýn verði að veruleika þarf Hveragerði að fá sanngjarna hlutdeild í þeim tekjum sem verða til í nærumhverfi okkar. Það er ekki bara einfalt réttlætismál fyrir okkur sem hér búum, heldur sjálfsögð fjárfesting í framtíð bæjarins.

Lárus Jónsson, bæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis
Dr. Jónas Guðnason, jarðfræðingur og varabæjarfulltrúi Okkar Hveragerðis

Fyrri greinOpnað fyrir tilnefningar til viðurkenninga FKA